Beint í efni
En

Ljúffengt Páska engjaþykkni í nýjum umbúðum

Það vekur jafnan mikla lukku þegar Páska engjaþykknið kemur í verslanir og er því einstaklega gaman að segja frá því að nú er þessi bragðgóði eftirréttur kominn í nýjar og litríkar umbúðir. Skemmtileg hönnun prýðir lok dósarinnar og má nú sjá eyru páskahérans heilsa hverjum þeim sem ætlar að gæða sér á ljúffengu innihaldinu. Endurvinnsla nýju umbúðanna er þægilegri en áður og flokkast bæði dós og lok með plasti. Leyfðu þér smá eftirrétt og nældu þér í Páska engjaþykkni í næstu verslun.