Aðferð:
Blandið olíu og söxuðu rosmarín saman látið liggja á í 1 tíma má liggja á yfir nótt. Hitið grillið og grillið kjúklingabringurnar þar til þær eru gegnum eldaðar.
Grillaðir portabellosveppir fylltir með gullosti
Fyrir 4 sem meðlæti
4 stk stórir portabellosveppir eða 8 stk smærri sveppir
2 msk olía til penslunar
salt og nýmulinn svartur pipar
1 stk gullostur skorinn í 8 bita
Aðferð:
Takið stilkinn úr sveppunum. Penslið sveppina með olíu og setjið á heitt grillið látið botninn snúa upp. Snúið við og kryddið með salti og pipar. Setjið 2 helminga af gullosti í báða sveppina. Grillið þar til osturinn hefur bránað. Berið fram sem meðlæti með grillmat jafnvel grilluðum laxi.
Sætakartöfluskífur aðferð:
Pennslið sneiðarnar með olíu og grillið. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar