Aðferð:
Stillið ofnin á 200°C.
Saxið basilin og blandið honum saman við rjómaostinn og makið á kjúklingalundirnar. Þræðið svo tveimur kjúklingalundum á hvert spjót með tveimur konfekt tómötum á milli. Klárið að þræða öll spjótin. Leggið svo spjótin á eldfast mót. Skerið svo mozzarella ostin og leggið yfir kjúklingin, inn í ofn í 15 mínútur.