Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Flórentínur - Jól











Hráefni fyrir  

Aðferð
Hitið ofninn í 190°C. Saxið möndlurnar þannig að bitarnir séu bæði litlir og stórir. Bræðið smjörið og sykurinn saman í þykkbotna potti. Stráið hveitinu yfir og hrærið. Hrærið rjómann saman við og látið malla í nokkrar mínútur þar til sósan þykknar. Takið pottinn af hitanum og blandið möndlum, berki og kirsuberjum saman við. Breiðið smjörpappír á bökunarplötur og setjið deigið á plöturnar með teskeið. Hafið gott bil á milli, kökurnar renna út. Bakið ofarlega í ofninum í 10–12 mínútur eða þar til kökurnar byrja að brúnast aðeins á köntunum. Takið þær þá úr ofninum og látið þær kólna á plötunni þar til þær eru það stífar að hægt sé að taka þær af. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði, hvorn lit fyrir sig ef bæði er notað ljóst og dökkt súkkulaði. Penslið neðri hliðina á kökunum með bræddu súkkulaði og látið súkkulaðihliðina snúa upp á meðan súkkulaðið harðnar. Ef þið viljið má renna gaffli í gegnum súkkulaðið til þess að búa til rendur í það.