Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Peru- og gráðaostarönd
Skreytið með ferskum berjum eða radísum ef vill.
Klæðið lítið kantað mót, 6-12 cm með plastfilmu.
Afhýðið perurnar og takið kjarnann úr.
Sjóðið perurnar í sykurvatni í u.þ.b. 20 mín.
Takið þær upp og látið leka af þeim og kælið.
Myljið helminginn af gráðaostinum og setjið í botninn á mótinu, hrærið rjómaostinn mjúkan og breiðið helminginn yfir gráðaostinn.
Skerið perurnar í sneiðar og raðið þeim eftir miðjunni ofan á rjómaostinum.
Breiðið það sem eftir er af rjómaostinum yfir og þar yfir það sem eftir er af gráðaostinum.
Leggið plastið yfir og setjið farg ofan á.
Látið standa í kæli í minnst 2 klst.
Takið úr mótinu og skerið í sneiðar.
Setjið á disk fyrið hvern og einn og dreypið hunanginu yfir, þá hnetum og skreytið að vild.
Berið fram með portvíni eða sætu ábætisvíni.