Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Osta- og skinkubrauð
Hitið ofninn í 175°C..
Brúnið beikonið, kælið og myljið.
Þeytið eggin þar til létt og ljós. Blandið mjólk, hveiti, lyftidufti og salti
saman við eggin. Þeytið vel.
Blandið beikoni, osti og skinku saman við hræruna.
Setjið deigið í smurt, hveitistráð mót (ílangt þ.b. 26x12 cm).
Bakið í 50-60 mín.
Takið úr mótinu og berið fram volgt með salati.
Hægt er að búa deigið til með fyrirvara og geyma í kælirog setja í
mótið rétt áður en það er bakað. Bakið þá í 60-65 mín.