Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Osta- og laukbaka
Hnoðið saman kotasælu, smjöri og hveiti.
Kælið í 1 klst.
Hitið ofninn í 200 °C.
Látið laukinn krauma í smjörinu þar til hann verður meyr.
Blandið paprikuduftinu út í, dragið af hitanum.
Þrýstið deiginu í botninn og upp með börmunum á eldföstu móti.
Stráið helmingnum af ostinum í botninn á botninn á mótinu, þá lauknum og síðan því sem eftir er af ostinum.
Blandið saman eggjum, sýrðum rjóma, mjólk og kryddi, og hellið yfir ostinn.
Bakið í 25 mín.
Berið fram volgt.