Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Melónuforréttur
Skerið melónuna í 5 -6 sneiðar þversum.
Hreinsið kjarnann úr þeim og leggið þær á diska.
Setjið rækjur og kræklinga í miðjuna.
Blandið saman sýrðum rjóma og mæjonsósu og hellið yfir.
Stráið rifnum gráðaosti yfir.
Skreytið með kavíar og paprikidufti.