Hitið ofninn í 175°C.
Sjóðið makkarónurnar eftir leiðbeiningum á pakka.
Bræðið smjörið og hrærið hveitinu saman við, látið krauma í 5 mín., og
hrærið í allan tímann, án þess að smjörið brúnist. Bætið mjólkinni út í
smátt og smátt og hrærið vel í á milli. Látið sjóða í 5 mín., þar til sósan
þykknar. Kryddið. Blandið makkarónum í sósuna og 175 g. af ostinum.
Setjið hræruna í smurt eldfast mót. Stráið ostinum sem eftir er yfir.
Bakið í u.þ.b. 25 mín..
Berið fram heitt með nýmöluðum pipar, brauði og smjöri.