Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Enchilada með kjúklingi
Hitið ofninn í 175°C.
Búið til hvíta sósu úr smjöri, hveiti, salti og mjólk.
Bætið 200 g af osti út í og hrærið þar til osturinn er bráðinn.
Blandið kjúklingakjöti, avocado, tómötum, olívum, chili og lauk saman við.
Blandið vel.
Dýfið tortillas í heita olíuna til að mýkja það.
Jafnið hrærunni á tortillaskökurnar og vefjið þeim upp.
Raðið þeim í smurt eldfast mót með samskeytin niður.
Stráið því sem eftir er af ostinum yfir og bakið í 20-25 mín.