Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (1 eink.)
Djúpsteikt blómkál með gráðaostasósu
Takið blómkálið í hríslur og sjóðið í léttsöltu vatnií u.þ.b. 7 mín..
Látið leka vel af því.
Blandið saman hveiti, bjór, olíu, eggjarauðum og múskati.
Þeytið hvíturnar með saltinu , og blandið þeim varlega í hveitiblönduna.
Hitið olíuna.
Dýfið blómkálinu í deigið .
Djúpsteikið þar til stökkt og fallegur litur hefur myndast.
Setjið á eldhúspappír.
Ekki setja of mikið í olíuna í einu.
Sósa: Látið rjómann krauma þar til u.þ.b.
1 1/2 bolli er eftir, hrærið í öðru hverju, ( u.þ.b. 5 mín ) Blandið lauk, hvítlauk og múskati í.
Kælið örlítið.
Setjið í blandara.
Bætið gráðaostinum útí, blandið þar til hann hefur jafnast út.
Hafið blandarann í gangi og setjið eina og eina smjörklípu í einu og hrærið vel í á milli.
Þar til sósan er orðin þykk og jöfn.
Bætið meiri gráðaosti í ef þarf.
Blandið graslauknum saman við.
Setjið sósuna í skál á miðjan disk eða fat og raðið blómkálinu í kringum .