Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Blæjuegg í rauðvínssósu
Sjóðið lauk og gulrætur í rauðvíninu í u.þ.b. 5 mín.
( ekki í alumínium potti ) við góðan hita.
Lækkið hitann og þeytið smörið saman við vínið í litlum bitum.
Hellið sósunni í gegnum sigti.
Haldið sósunni heitri.
Hitið saman 2 lítra af vatni og rauðvínsedik að suðu.
Brjótið eggin í skál eitt í einu, og setjið varlega út í vatnið þegar það fer að sjóða.
Snúið eggjunum varlega með gataskeið eða spaða.
Látið krauma í 4 mín..
Takið eggin upp með gataskeið og leggið þau á hreinan klút.
Skerið hvítuna til ef þarf til þess að eggin verði fallegri, í laginu.
Skiptið sósunni á 6 heita diska og leggið 2 egg á hvern disk.
Kryddið með salt og pipar.
Berið strax fram.