Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Blaðdeigsrúlla


















Hráefni fyrir  

Látið lauk og hvítlauk krauma í olíunni í nokkrar mínútur. Bætið sperglum, papriku í og látið krauma í 6-7 mínútur. Bætið baunum, salti og pipar saman við. Dragið af hitanum og kælið. Hitið ofninn í 190°C. Blandið saman ricotta, 26% osti, basil og eggi í stórri skál. Blandið grænmetinu af pönnunni saman við. Setjið eina blaðdeigsörk á borðið (hafið hinar í plasti) penslið hana með bræddu smjöri, leggið aðra örk yfir, penslið með smjöri og stráið 1 msk af brauðmylsnu yfir, setjið þriðju örkina yfir og penslið með smjöri og dreifið 1 msk að brauðmylsnu yfir, leggið fjórðu örkina yfir og stráið 1 msk af brauðmylsnu yfir þá fimmtu örkina og penslið hana með smjöri. Setjið helminginn af fyllingunni á mjórri endann á blaðdeigs örkunum, ekki alveg út í enda hvoru megin. Brjótið langhliðina örlítið inn yfir fyllinguna og penslið inná brotið með smjöri og rúllið upp frá mjórri endanum. Setjið rúlluna á plötu klædda bökunarpappír og penslið með smjöri. Endurtakið með arkirnar og fyllinguna sem eftir er. Bakið í 20-30 mínútur, eða þar til fallegur litur er komin á rúllurnar. Skerið í sneiðar og berið fram volgar með salati Einnig er hægt að hafa bögglana minni þannig að einn böggull sé á mann. Þá er baksturstíminn styttri. Great- testing Wraps bls 74