Blandið þurrefnunum saman í skál og hrærið hluta af mjólkinni saman við. Bætið eggjunum og bræddu smjöri út í. Þynnið með mjólk. Bakið klatta á eggjapönnu eða pönnukökupönnu (1½-2 msk fer í hvern klatta). Í klattana má nota afgang af grjónagraut.
Fylling:
Skerið gulræturnar í bita og spergilkálið í stilka. Sjóðið grænmetið í léttsöltuðu vatni. Blandið saman mjólk, rjóma, soði og grænmetiskrafti og látið sjóða í 2-3 mín. Jafnið með maísenamjöli fyrir ljósa sósu og bætið grænmetinu út í. Bragðbætið með salti og látið hitna vel. Gott ofan á nýbakaða klatta.