Sneiðið blaðlauk (eða lauk) í teninga og látið krauma í smjörinu. Sneiðið sveppina og látið þá krauma með lauknum. Bætið kryddinu saman við í neðantalinni röð. Blandið hveitinu út í og jafnið með vatni, rjóma og hvítvíni (má vera óáfengt). Látið krauma í 5-7 mín. Hreinsið hörpuskelfiskinn og brytjið í 2-4 bita eftir stærð. Bætið fiskinum út í sósuna og gegnhitið en sjóðið ekki. Gætið þess að skelfiskurinn sé alveg hvítur. Ristið brauðsneið, leggið á disk og hellið jafningnum yfir.
Berið grænt salat með. Einnig má bera þennan rétt fram í brauðkollum.