Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Ofnvefja með fyllingu


















Hráefni fyrir  

Hrærið hveitið og hluta af mjólkinni vel saman (má vera í hrærivél). Bætið eggjunum saman við og því sem eftir er af mjólkinni, bergmyntu, salti og sykri. Hrærið vel og látið deigið bíða í u.þ.b. 30 mín. Hitið bakarofn í 225°C. Setjið ofnskúffu (30x40 sm) inn í ofninn í 2-3 mín. Takið skúffuna út og penslið vel með smjöri og hellið deiginu í. Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 20 mín. (kakan verður dálítið ójöfn). Takið úr ofninum og látið rjúka. Hvolfið á bökunarpappír og kælið.

Fylling1:
Smyrjið lifrarkæfu yfir kökuna og setjið spægipylsu og gúrkur í röðum langsum ofan á kökuna. Vefjið kökuna í þétta rúllu og setjið inn í plastfilmu. Geymið í kæli í 4-6 klst.

Fylling 2:
Smyrjið kökuna með smjöri og raðið skinku, tómötum og eggjum í raðir langsum ofan á kökuna. Hrærið majónesi og sýrðum rjóma saman og smyrjið yfir áleggið. Vefjið kökuna í þétta rúllu og setjið í plastfilmu. Geymið í kæli í 4-6 klst.