Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Fylltar pönnukökur
Blandið saman hveiti og salti og hrærið út með mjólk og eggjum. Blandið sinnepi og olíu saman við. Látið deigið bíða í 30 mín. Bakið þunnar pönnukökur fallega brúnar og stráið blóðbergi yfir hverja köku á þá hlið sem er óbökuð.
Fylling: Skerið skinkuna í strimla og rífið ostinn. Setjið sýrða rjómann í smurt mót. Skiptið skinku og 2/3 af ostinum á pönnukökurnar. Rúllið þeim upp og leggið þær með samskeytin niður á sýrða rjómann. Stráið blóðbergi yfir og síðan ostinum. Bakið í ofni við 200°C í 20-30 mín.