Blandið öllu saman og látið bíða í kæli.
Pakkið meðalstórum kartöflum eða sætum kartöflum í álpappír og glóðið eða bakið í u.þ.b. 1 klst. við 220°C. Skerið kross í kartöfluna og þrýstið opinu í sundur með því að taka utan um kartöfluna með fingrunum. Fyllið með kryddrjómanum og skreytið t.d. með sveppum, lauk, rauðlauk, steinselju, dilli, reyktum laxi, rækjum, kavíar, ólífum, piparblöndu eða því sem á við hverju sinni.