Eggjarjómakrem:
Hakkið möndlurnar smátt í kvörn. Þeytið saman eggjarauður, sykur og vanillusykur. Setjið kaffirjómann (má nota 1 1/2 dl rjóma og 1 dl mjólk í staðinn fyrir 2,5 dl kaffirjóma) í pott ásamt möndlum og hitið að suðu. Hellið sjóðandi vökvanum rólega út í eggjahræruna í hrærivélinni og hrærið vel í á meðan. Látið blönduna út í pottinn aftur og hitið að suðu við vægan hita, hrærið vel á meðan. Má ekki sjóða því þá fer sósan í kekki. Bæta má víni út í (má vera sérrí í staðinn fyrir koníak). Berið sósuna fram volga eða kalda með ávaxtasalati.