Aðferð:
Setjið olíuna í pott og látið laukinn krauma 6-8 mínútur, þar til hann er glær. Hellið soðinu yfir hann ásamt matreiðslurjómanum, bætið frosnu baununum og múskati útí og hitið að suðu. Látið baunirnar sjóða í 8–9 mínútur. Takið þá pottinn af hitanum og maukið baunirnar með töfrasprota þar til súpan verður mjúk og jöfn (eða setjið hana í matvinnsluvél). Hitið aftur upp að suðu. Saltið og piprið eftir smekk. Skreytið súpuna með sýrðum rjóma og beikonbitum. Berið strax fram.