Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Grænmetissúpa með pasta










Hráefni fyrir  

Ferskur kerfill eða steinselja til skrauts Hitið vatn í stórum potti. Skerið hvítkálið í fernt og sneiðið þunnt. Setjið kálið út í sjóðandi vatnið og látið sjóða í 5 mín. Takið upp og látið í sigti og undir rennandi kalt vatn, látið leka af því. Bræðið 50 g af smjörinu í víðri pönnu og látið hvítkálið krauma í því í u.þ.b. 15 mín. eða þar til vel meyrt en ekki láta það brúnast. Skerið græna hlutann af blaðlauknum og kljúfið hvíta hlutann í fernt eftir endilöngu, skerið síðan í þunnar sneiðar þvert á. Látið blaðlaukinn krauma í potti, í smjörinu sem eftir er þar til vel meyr en látið ekki brúnast. Blandið hvítkáli og soði saman við og látið sjóða við vægan hita í u.þ.b. 40 mín. Smakkið til með salti og pipar. Setjið pastað í litlum bitum út í (brjótið það niður ef það er of stórt) og sjóðið í 5-10 mín. Berið nýrifinn Grana ost með.