Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C með blæstri og undirhita. Setið salsasósuna yfir pizzabotninn og dreifið mexíkóostinum og maískorninu yfir sósuna. Dreifið pepperóní jafnt yfir ásamt rifna piparostinum. Að lokum er rjómaosturinn settur á pizzuna í smáklípum. Bakið pizzuna neðarlega í ofninum í 12–15 mínútur. Þegar bakstri er lokið eru nachos-flögur muldar yfir pizzuna og sýrða rjómanum dreift yfir með teskeið. Sáldrið kóríander yfir alla pizzuna að lokum.