Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Ostakaka með rommlús
Blandið saman smjöri og kexmylsnu og þrýstið í botninn
og upp með hliðunum á 24 sm. klemmuformi. Kælið.
Blandið saman vatni og rommi. Stráið matarlímsdufti
þar yfir, látið standa í 5 mín., blandið skyndikaffiduftinu
saman við og hitið. Hrærið í þar til kaffi og matarlíms-
duft hafa jafnast út. Kælið örlítið.
Hrærið rjómaostinn mjúkan, bætið sykri og sítrónusafa
saman við, hrærið vel.
Blandið volgri matarlímsblöndunni saman við, og blandið
rjómanum að síðustu varlega saman við.
Hellið fyllingunni yfir kexbotninn.
Skreytið með rifnu súkkulaði.
Kælið í allt að sólarhring.