Hitið ofninn í 175°C..
Setjið bökunarpappír í botninn á 26 sm klemmuformi.
Blandið saman kókosmjöli, hnetum, hveiti og smjöri, og þrýstið í botninn á forminu.
Bakið í 15 mín. Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn.
Látið leka af ananasinum, geymið 1/2 bolla af safanum.
Aðskiljið eggin.
Blandið saman safa, eggjarauðum og ¼ bolla af sykri.
Hitið, hrærið stöðugt í þar til þykknar.
Kreistið vökvann úr matarlíminu og leysið það upp í heitri hrærunni.
Hrærið rjómaostinn mjúkann og blandið heitri hrærunni saman við.
Kælipð þar til þykknar.
Þeytið eggjahvíturnar bætið því sem eftir er af sykrinum, stífþeytið.
Blandið ananaskurlinu saman við.
Blandið hvítunum síðast varlega saman við.
Hellið yfir botninn.
Kælið í nokkrar klukkustundir áður en tekið úr forminu.