Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Skyrterta með jarðarberjum
Stífþeytið egg og sykur. Sigtið hveiti og lyftiduft og blandið saman við eggjahræruna ásamt kókosmjöli og vatni. Bakið í þremur smurðum hringmótum 24 sm í þvermál við 180-200°C í 10-12 mín.
Fylling: Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Sigtið safann frá jarðarberjunum, geymið. Þeytið rjómann. Blandið sykrinum og jarðarberjunum saman við skyrið. Bræðið matarlímið í vatnsbaði og kælið það með sérríinu og 2 msk af jarðarberjasafa. Hellið matarlíminu saman við skyrblönduna og hrærið vel. Blandið þeyttum rjómanum saman við. Látið skyrblönduna bíða í kæli um stund eða þar til hún byrjar að stífna. Bleytið botnana með jarðarberjasafa og setjið skyrblönduna á milli og ofan á. Skreytið með jarðarberjum og þeyttum rjóma, 3-4 dl rjómi. Látið kökuna bíða í 8-10 tíma í kæli.