Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Ávaxtaskyrterta














Hráefni fyrir  

Stífþeytið egg og sykur. Sigtið saman hveiti og lyftiduft og blandið í eggjahræruna. Bakið í lausbotna hringformi 22-24 sm í þvermál við 170-180°C í u.þ.b. 12-15 mín.

Fylling :
Leggið matarlímið í bleyti í kalt vatn. Þeytið rjómann og bræðið matarlímið. Hrærið skyrið með sykrinum. Kælið matarlímið með hluta af ananassafanum úr dósinni og vætið kökubotninn á tertudiski með afganginum. Skerið ananasinn í litla bita. Blandið matarlíminu saman við skyrblönduna ásamt ananasbitum og sítrónusafa. Bætið þeyttum rjómanum út í að síðustu. Látið búðinginn hálfstífna í kæli. Smyrjið þunnu lagi af jarðarberjamauki yfir kökubotninn. Látið klemmuhring af formi (eða búið til hring úr álpappír) utan um botninn og hellið búðingnum yfir. Látið búðinginn stífna alveg í kæli í 2-3 klst.