Nautalundir aðferð:
Skerið nautalundina eða nautafillet í u.þ.b. 200 g steikur. Skerið með litlum hníf inn í hliðina á steikinni, passlega lítið þannig hægt sé að koma þar inn 1/6 bita af camembert.
Brúnið steikina í smjöri og bakið í ofni við 180°C 6-8 mínútur. Gott er að hvíla steikina eftir 5 mínútur og bæta svo við síðustu mínútunum. Látið loks steikina standa í 2-3 mínútur áður hún er borin fram.
Sósa aðferð:
Leggið villisveppina í bleyti í heitt vatn látið standa í 15 mínútur. Saxið sveppina og villisveppina og brúnið í smjörinu og kryddið með salti og pipar. Bætið í rjóma og vatni látið suðuna koma upp. Skerið villisveppaostinn í bita og bætið útí sósuna. Hrærið vel í. Bragðbætið með kjötkrafti ef með þarf.
Kartöflur aðferð:
Bakið kartöflurnar í 45-50 mínútur. Látið standa örlítið svo þær kólni lítið eitt. Skerið kartöflurnar í tvo helminga og skafið innihaldið úr hýðinu geymið hýðið. Hrærið saman innihaldið úr kartöflunum með sýrða rjómanum, eggjarauðu og rifnum osti. Setjið fyllinguna í hýðið og bakið við 170°C í 12-15 mínútur.