Setjið hreinsað kjötið í steikingarpott og stráið kryddinu yfir. Steikið í ofni þar til u.þ.b. 1/2 klst. er eftir af steikingartímanum. Hreinsið grænmetið og skerið í bita. Dreifið grænmetinu yfir kjötið í pottinum og steikið áfram í 1/2 klst. Steikingartími fer eftir kjöttegundum.
Sósa:
Sigtið soðið í pott, bætið vatni við ef soðið er ekki nægilegt. Hristið saman vatn og hveiti og jafnið út í sjóðandi soðið. Bætið sýrða rjómanum út í og kryddið. Látið sósuna sjóða við vægan hita í 5-10 mín. Bætið við kryddi ef þarf.