Hryggur aðferð
Hamborgarhryggurinn er soðinn í 20 mínútur og látinn standa í soði ekki á hita í minnst 20 mínútur. Hryggurinn er tekinn úr pakkningunni og lagður á bökunarplötu. Bræðið síðan saman á pönnu smjör, púðursykur og sinnep, þá er safa af ananas hellt á pönnuna og látið sjóða í 2 mínútur. Þá er ananas bætt í ásamt furuhnetum og gljáð yfir hrygginn. Hryggurinn er bakaður á 180°C í 20 mínútur og nokkru sinnum veitt gljáann og helt yfir hrygginn á meðan á bakstri stendur yfir.
Sósa aðferð
Vatni, sinnepi, kjötkrafti, malti og púðursykri er sett í pott og fengin er upp suða og þykkt með maizena (sem búið að blanda með vatni svo leysist upp) þá er rjóma bætt í og smakkað til með salti, pipar og hvítvínsediki bætt í sósuna að lokum.
Borið fram með
Sykurbrúnuðum kartöflum og steiktu grænmeti af eigin vali