Aðferð:
Steikið beikonið á pönnu og geymið. Grillið borgarann eftir smekk eða kjúklinginn þar til hann er steiktur í gegn. Leggið ostinn ofan á borgarann þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum og látið hann bráðna örlítið. Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins. Smyrjið brauðið ríflega með pestósósunni. Raðið svo borgaranum saman.