Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Kjúklingur vafinn í parmaskinku




















Hráefni fyrir  

Kjúklingur fylling:

Skerið vasa í kjúklingabringurnar og setjið fyllinguna inn í með teskeið. Vefjið parmaskinkunni utan um og setjið í eldfastmót smurt með olíu. Steikið í ofni við 170° í 30 - 40 mín fer eftir stærð bringnanna  

Rauðvínssósa með sólþurrkuðum tómötum

Saxið laukinn og sveppina fínt og steikið í olíu eða smjöri. Hellið rauðvíni í pottinn og látið það sjóða þar til það er cirka 1/2 líter eftir. Bætið kjúklingasoðinu í og látið aftur sjóða til helmings. Sigtið laukinn og sveppina úr sósunni. Bragðbætið með kjötkrafti. Þeytið smjöri í sósuna og kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Bætið sólþurrkuðum tómötunum út í sósuna rétt áður en hún er borin fram

Bakaðir smátómatar með basilíku, hvítlauk og mozzarella

Skerið tómatana og mozzarellakúlurnar í tvennt. Veltið upp úr ólífuolíunni og stráið hvítlauk og basilíkulaufum yfir. Bakið við 170° C í 15. mínútur.

Með þessu er gott að bera fram ferskt klettasalat og ólífur.