Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Lambalæri med fyllingu og hjúp







Fylling:










Hráefni fyrir  

Hitið ofninn í 175°C. Stingið litlum hníf í lærið á nokkrum stöðum og stingið hvítlauksrifum í. Penslið lærið með smjöri og setjið það í steikingarpott, ásamt 1 1/2 dl af hvítvíni. Steikið í 1 1/2-2 klst. Búið til fyllinguna á meðan. Látið sveppi, lauk, timian og steinselju krauma í smjörinu í 5-6 mín. Takið pönnuna af hitanum, blandið brauðmylsnu í og kryddið. Takið kjötið upp úr pottinum og hellið soðinu í pott. Skolið steikarpottin að innan með örlitlu vatni og hellið saman við kjötsoðið ásamt víni ef notað er. Látið suðuna koma upp, smakkið til með súpukrsfti. Þykkið. Skerið raufar í kjötið með 2 sm. bili niður að beini. Setjið fyllinguna í skorningana. Blandið saman smjöri og osti og smyrjið yfir kjötið. Setjið í ofninn í 10-15 mín. Berið fyllinguna sem gengur af fram með kjötinu. Gott er að búa til ríflega af fyllingunni og bera fram með í staðin fyrir kartöflur.