Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Lambahryggur Provencale
Lambahryggur sagaður eftir endilöngu.
Áætlið 2-3 rif á mann.
Látið saga hryggjarbeinið í sundur á milli rifana.
Hitið ofninn í 200°C.
Nuddið salti og pipar á kjötið.
Bindið kjötið upp á 2-3 stöðum þvert yfir ef þarf.
Setjið kjötið í ofnskúffu og steikið í 30 mín.
Penslið yfir kjötið með fitunni í skúffunni eða með smjöri 2-3, meðan á steikingu stendur.
Blandið saman steinselju, brauðmylsnu, lauk og hvítlauk og blandið í brætt smjörið.
Takið kjötið út út ofninum.
Takið böndin af kjötinu.
Þrýstið fyllingunni á kjötið, ef þarf má bleyta fyllinguna örlítið með fitu úr skúffunni.
Steikið kjötið áfram í 10-15 mín.
Látið kjötið standa í 10-15 mín. áður en það er skorið í sneiðar á milli rifana.
Skerið varlega svo að fyllinginn detti ekki af.
Berið fram með soðnum kartöflum.