Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Lambahryggur að hætti franskra


Sósa:










Kjöt:







Hráefni fyrir  

Skraut: ólívuolía basillauf Hitið olíuna fyrir sósuna í víðum potti. Setjið beinin í og látið þau krauma í u.þ.b. 10 mín. eða þar til þau fara að brúnast. Bætið lauk, gulrót og selleríi í og látið grænmetið brúnast. Hellið víninu yfir og skafið vel í botninn, látið sjóða niður þar til það fer að þykkna. Bætið soði, grænmetisbúnti og hvítlauk út í og látið sjóða við vægan hita í 45 mín. Sigtið og þrýstið eins miklum vökva úr og hægt er, setjið soðið aftur í pottinn. Hitið ofninn í 220°C. Hitið olíu og helminginn af smjörinu í víðri pönnu eða lágum víðum potti. Kryddið kjötið, snöggsteikið það við háan hita á báðum hliðum. Lækkið hitann og steikið áfram í 4 mín. Setjið pönnuna í ofninn og steikið áfram í 15-20 mín, eða lengur ef kjötið á að vera vel steikt. Takið kjötið upp og breiðið álpappír yfir það. Hellið soðinu í steikingarílátið og látið sjóða niður þar til sósan fer að þykkna. Smakkið sósuna til. Hitið olíuna og snöggsteikið basillaufin í u.þ.b. 1 mín. Skerið kjötið í sneiðar. Setjið sósu á hvern disk, raðið kjötsneiðum ofan á ásamt grænmeti. Ef kjötið er skorið í sneiðar og sett á eitt fat er sósan sett yfir kjötið, en á diskinn ef kjötið er sett á disk fyrir hvern og einn. Lambahryggurinn sagaður eftir endilöngu. Áætlið 2-3 rif á mann. Látið saga hryggjarbeinið í sundur á milli rifjanna.