Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Lambafille með Bordelaise sósu
Bræðið smjörið í víðum potti, bætið lauk, gulrót, blaðlauk, og selleríi við og sjóðið þar til vel meyrt en ekki láta það brúnast.
Hrærið hveiti og tómatkrafti saman við.
Bætið við tómötum, hvítlauk, hvítvíni, soði og grænmetisbúnti.
Kryddið með salti og pipar.
Látið malla undir loki í 30 mín.
Látið í sigti og þrýstið á til að ná öllum vökva úr.
Setjið soðið til hliðar en hendið grænmetinu úr sigtinu.
Bræðið smjörið fyrir sósuna.
Bætið karlottulauknum út í og látið krauma þar til meyr en ekki láta hann brúnast.
Bætið víni, piparkornum og tímíani út í og látið malla þar til nánast allur vökvi er búinn.
Bætið sósugrunninum út í og látið sjóða niður um 1/3.
Sigtið.
Haldið sósunni heitri.
Skerið í fituna á kjötinu og stráið kryddi yfir.
Raðið kjötinu á grind yfir ofnskúffu og glóðið í ofni í u.þ.b. 8-10 mín., slökkvið á glóðinni
og lokið ofninum og látið kjötið standa í ofninum í um 10 mín.
Berið fram með nýsoðnum kartöflum og gljáðu grænmeti.
Sjá gljáð grænmeti bls. 103 í Ostalyst 2.