Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Kjúklingur í hvítvíni
Skerið kjúklinginn í 8 bita.
Stráið salti og pipar á bitana.
Hitið saman smjör og olíu og brúnið kjúklingahlutana með skinnhliðina niður fyrst.
Setjið laukinn út í, og látið krauma þar til hann er vel mjúkur.
Hellið allri fitu af pönnunni og hellið hvítvíni og kjúklingasoði yfir kjúklingabitana.
Bætið hvítlauk og grænmetisbúnti út í, og kryddið með salti og pipar ef þarf.
Látið suðuna koma upp og látið krauma í 15-20 mín.
Færið kjúklingana upp á það fat sem á að bera þá fram á.
Veiðið alla fitu ofan af soðinu og hrærið hveitið saman við hluta af fitunni.
Sigtið sósuna í pott.
Látið suðuna koma upp og hrærið hveiti hrærunni saman við, hrærið í allan tímann.
Setjið rjómaostinn út í og látið hann bráðna.
Ef sósan er of þunn má þykkja hana með örlitlu hveiti hrærðu út í afgangs fitu eða köldu vatni.
Sjóðið sveppina í u.þ.b. 2 mín., dragið af hitanum ( gætið þess að sveppirnir séu smáir og allir svipaðir að stærð ).
Dreifið sveppum og gljáðum lauk yfir kjúklingana.