Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Kjúklingur frá Mexíkó
Kjúklingur:
Skerið laukinn í tvennt. Hitið vatnið að suðu og látið lauk, hvítlauk, lárviðarlauf, tímían, pipar, salt og kjúklingabringur út í. Látið sjóða í 25 mín. Dragið af hitanum og látið kjötið kólna í soðinu.
Takið bringurnar upp og látið leka vel af þeim og þerrið. Geymið soðið.
Enchiladas:
Setjið chilipiparinn undir grill þar til húðin fer að brúnast, snúið oft. Setjið í plastpoka og lokið vel og látið standa í 5 mín. Takið úr pokanum og hreinsið húðina af undir rennandi köldu vatni (notið hanska). Opnið chilíið og hreinsið innan úr því og saxið síðan chilíið gróft.
Blandið saman ediki og vatni, setjið chili út í og látið standa í 30 mín.
Takið upp og látið leka vel af því, geymið vökvann.
Setjið chili, hvítlauk, lauk, oreganó, cumin, pipar, salt og 1/2-1 bolla af ediksblöndunni í víða skál.
Hitið olíuna. Takið tortillas, eitt í einu, og dýfið í sósuna og látið leka það mesta af og setjið síðan í olíuna. Þegar tortillas fer að mýkjast, brjótið það þá saman í tvennt, snúið því við og steikið áfram en ekki þar til það verður stökkt.
Farið varlega þar sem olían vill spýtast svolítið. Haldið enchiladas heitu inni í ofni.
Steikið kjúklingabringurnar í sömu olíunni. Takið bringurnar í bita.
Setjið salatið á átta diska. Raðið 3 enchiladas ofan á, og þar á kjúklingabitunum.
Stráið lauk, osti og chili yfir og hellið tómatsósu (tomatosauce úr dós) yfir.
Berið fram með kartöflum og gulrótum.