Grænmetisbúnt =( 1 lárviðarlauf, 1 grein af bómðberg ( timían), 1 grein rósmarin, 8 greinar steinselja ) Hreinsið fuglana og skerið þá í 8 hluta hvorn.
Stráið salti og pipar á hlutana og veltið þeim upp úr hveitinu.
Bindið saman það sem á að fara í grænmetisbúntið.
Skerið beikonið í lítlar ræmur, og hreinsið sveppina en hafið þá heila.
Hitið olíu og smjör saman á pönnu.
Látið lauk, beikon og sveppi krauma í feitinni þar til mjúkt.
Takið upp og setjið í skál.
Brúnið kjúklingahlutana á öllum hliðum.
Hellið koníakinu yfir og kveikið í.
Hellið rauðvíninu yfir bætið grænmetisbúnti, hvítlauk, salti, pipar, múskati og sykri út í.
Látið sjóða í 1 klst.
Bætið sveppablöndunni út í og látið sjóða í 1/2 klst.
Takið kjúklingahlutana upp úr og raðið þeim á fat.
Fjarlægið grænmetisbúntið.
Sjóðið sósuna kröftuglega í 2-3 mín.
Bætið rjómaostinum út í og látið hann bráðna.
Hellið sósunnni yfir kjúklingahlutana.
Berið strax fram.
Gott er að bera ristaða brauðteninga með.