Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Kálfakjöt með eplum















Hráefni fyrir  

Hreinsið sveppina og sneiðið þá, látið þá krauma í 1/3 af smjörinu við vægan hita í 10-15 mín. Hrærið helmingnum af rjómaostinum saman við. Haldið heitu. Hitið ofninn í 225°C. Afhýðið eplin og takið kjarnann úr þeim. Skerið þau í báta og raðið í eldfast mót. Bræðið 1/3 af smjörinu og penslið yfir eplin. Bakið þau í 10-15 mín. eða þar til þau eru vel mjúk en ekki komin í mauk. Fletjið kjötsneiðarnar lítið eitt út með handarjaðrinum. Stráið salti og pipar á kjötið. Steikið kjötið í smjörinu sem eftir er. Ekki þurrsteikja kjötið. Takið kjötið af pönnunni og haldið heitu. Steikið laukinn, en ekki brúna hann, þar til vel glær. Takið mestu fituna af pönnunni, setjið hana á hitann aftur og hellið koníakinu yfir og kveikið í. Bætið sveppunum út í og því sem eftir er af rjómaostinum og rjóma. Látið krauma í 2 mín. Þynnið sósuna með rjóma ef þarf. Hellið sósunni yfir kjötið og stráið steinselju yfir. Raðið eplunum við hliðina.