Raðið kjötsneiðunum í þunnt lag á blauta diskaþurrku, látið þær ganga hverja inn á aðra.
Blandið saman hakki, brauðmylsnu og rifna ostinum.
Bætið söxuðu eggjunum og hráa egginu saman við.
Kryddið með salti, pipar, múskati og kanil.
Breiðið hakkblönduna yfir kjötsneiðarnar, en ekki alveg út á brúnir.
Raðið salamisneiðunum ofan á eftir endilöngu, þá ostsneiðunum og þar ofan á eggjunum í eina röð.
Rúllið kjötinu þétt upp með hjálp diskaþurrkunnar.
Takið rúlluna og bindið þétt upp með sláturgarni.
Hitið olíuna í potti og látið lauk, gulrót og sellerí krauma þar til vel mjúkt.
Blandið tómatpurée saman við, látið sjóða í 10 mín.
Ef blandan verður of þurr má væta í henni með safanum af tómötunum.
(dós 400 g )Látið leka vel af tómötunum og bætið þeim út í.
Kryddið með salti, pipar, múskati og kanil.
Látið krauma í 15 mín.
Setjið rúlluna í pott og hellið tómatsósunni yfir, hellið víninu yfir og kveikið í.
Bætið vatni í, þannig að rétt fljóti yfir.
Látið malla undir loki í 1 1/2 klst.
Bætið meira vatni í ef þarf.
Takið rúlluna upp og takið bandið af, skerið rúlluna í sneiðar.
Berið fram heitt eða kalt.
Raðið sneiðunum á fat skreyttu með hlaupi (Toro) bragðbættu með sérrí eða púrtvíni.
Sjóðið sósuna niður um helming, berið hana fram með.