Fyrir nautið
Grillið kjötið vel og fallega. Setjið í eldfastmót. Bræðið smjörið ásamt kryddunum og lauknum. Hellið yfir steikina og bakið við 150°C uns kjarnhiti hefur náð 52°C.
Fyrir grænmetið
Skrælið grænmetið og skerið í hæfilegar stærðir. Setjið í eldfast mót með restinni af innihaldinu nema sítrónunni. Lokið með álpappír og eldið við 150 gráður uns meyrt. Kryddið með salti og pipar og sítrónuskel.
Fyrir kartöflunar
Sjóðið kartöflurnar uns meyrar. Kremjið í gegnum kartöflumúsara og pískið upp með restinni af innihaldinu og bragðbætið með salti.
Fyrir sveppasósuna
Steikið sveppina upp úr smjöri. Bætið smá ediki út á og sjóðið uns það er gufað upp. Bætið þá soðinu út á og sjóðið niður um rúmlega helming. Setjið þá rjómann og ostinn út í og sjóðið hæfilega þykkt. Smakkað til með salti og pipar.