Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Hátíðarkalkúnn
Þvoið fuglinn og þerrið vel að utan og nuddið vel með öllu kryddinu. Kryddið með blöndu af salti og pipar að innan. Smyrjið hluta af bræddu smjörinu utan á fuglinn. Setjið fyllinguna inn í magahólfið og lokið fyrir með álpappír eða saumið fyrir með rúllupylsugarni. Athugið að troða ekki fyllingunni um of í magaopið því hún þenst út. Bindið fæturna saman. Steikið fuglinn við 160-170°C, með bringuna niður, á grind ofan á ofnskúffu í u.þ.b. 40 mín. Snúið kalkúninum þá við og steikið áfram. Penslið tvisvar til þrisvar með bræddu smjörinu á steikingartímanum. Gott er að hella sjóðandi vatni í ofnskúffuna seinni hluta tímans. Kalkún þarf að steikja í u.þ.b. 30 mín. á hvert kg eða u.þ.b. 2½ tíma fyrir 4,5 kg fugl eða þar til safinn er orðinn tær ef stungið er með prjóni þar sem fuglinn er þykkastur. Ef læri eða bringa dökkna um of er gott að setja álpappír yfir.