Brúnið kjúklingabringur í smjöri og látið blaðlaukinn krauma í á eftir. setjið í pott (eða pönnu með loki) ásamt vatni, ananassafa, krafti, muldum rósapipar, sinnepi, soja og sítrónupipar og sjóðið við vægan hita í 20-30 mín. eða þar til bringurnar eru fullsoðnar. Látið sýrða rjómann og ananasbitana krauma með síðustu 5 mínúturnar. Þykkið með maísenamjöli.