Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Gæs með rjómasósu
Þvoið gæsina að utan og innan og þerrið vel. Stráið blöndu af salti og pipar inn í og utan á. Setjið fyllinguna inn í og lokið með prjóni eða saumið fyrir. Steikið á grind ofan á ofnskúffu við u.þ.b. 170°C í 2-3 tíma (50 mín. fyrir hvert kg). Hellið 1/2 l af soðnu vatni í skúffuna seinni hluta tímans.
Fylling: Leggið sveskjur og epli í bleyti í kalt vatn í u.þ.b. 1 klst. Saxið lauk og látið krauma í smjöri ásamt hakki þar til það verður ljósbrúnt. Smækkið epli og sveskjur og blandið í ásamt vökvanum af ávöxtunum. Kryddið. Látið krauma í 5-8 mín. Kælið aðeins áður en sett er inn í fuglinn.
Sósa: Síið soðið (7 dl) í pott og fleytið mestu fituna ofan af. Stráið hveitinu yfir og bíðið þar til það botnfellur. Hrærið vel í og sjóðið. Bætið rjóma, súpukrafti eða madeira (eða púrtvíni) og rifsberjahlaupi út í og sjóðið við vægan hita í 5 mín. Bragðbætið með salti og pipar.