Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Fersk ávaxtakaka með rjóma
Aðskiljið egg og þeytið rauðurnar með flórsykrinum. Þeytið eggjahvíturnar til hálfs og blandið sykrinum saman við. Þeytið áfram þar til hvíturnar eru stífar. Blandið þurrefnunum saman við eggjarauðurnar ásamt rifnu marsípaninu, bætið eggjahvítunum saman við að síðustu. Setjið deigið í smurt mót 22-24 sm í þvermál og stráið berjunum yfir (hlutið jarðarberin í tvennt eða þrennt). Bakið kökuna við 170°C í 40-50 mín. eða þar til kakan er fallega brún og laus frá börmum. Takið út og látið rjúka.