Bræðið smjörið. Hrærið hveitið saman við og þynnið með mjólkinni. Hrærið eggjarauðurnar, sykurinn og saxaðar möndlurnar(má sleppa) saman við. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið þeim varlega saman við. Bakið pönnukökurnar á pönnu með loki við lítinn hita. Snúið þeim við þegar efri hliðin er farin að þorna og neðri hliðin að fá fallegan lit, þetta verða 4-5 kökur í allt. Leggið kökurnar saman með góðri sultu, ekki mjög sætri.