Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Uppskriftir

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Gljáð grænmeti








Hráefni fyrir  

Veljið eitt af eftirfarandi: 600 g smálaukur flysjaður t.d., vorlauk, perlulauk eða karlottulauk. takið lög utan af honum eftir því sem þarf til þess að þeir verði allir jafn stórir. 600 g gulrætur þvegnar og skornar í jafnar sneiðar 600 g næpur flysjaðar og skornar í jafna bita 600 g sellerí, skorið í jafna bita. Gljái: Vatn, 30 g smjör, örlítið sykur, salt. Setjið valið grænmeti í víðan pott og látið vatnið rétt fljóta yfir. Bætið smjöri, sykri og salti út í. Hitið að suðu, setjið lok á pottinn og látið malla þar til vatnið er svo til soðið niður ( u.þ.b. 15 mín, fyrir lauk og gulrætur en 10 mín fyrir næpur og sellerí ). Takið lokið af og hristið pottin lítið eitt til að allt græn- metið fái gljáa. Berið fram með kjötréttum. Gætið þess að grænmetisbitarnir séu allir að sömu stærð. Brún gljáið laukinn með því að hrista pottinn á hitanum þar til brúnn litur er kominn á laukinn.