Aðferð:
Hrærið saman öllu sem á að fara í sósuna. Bragðbætið með sítrónusafa, salti og pipar eftir smekk. Beinhreinsið laxaflakið og skafið hreistrið af roðinu ef þið viljið borða það. Penslið flakið með olíu á báðum hliðum. Setjið flakið í stóra fiskiklemmu í u.þ.b. 3 mínútur á hvorri hlið, en það fer eftir þykktinni á fiskinum. Einnig má pönnusteikja laxinn: Skerið flakið í fjóra hluta. Setjið olíu á pönnu og steikið við meðalhita á báðum hliðum, byrjið á roðhliðinni. Saltið og piprið.
Berið laxinn t.d. fram með kartöflum með dilli, strengjabaunum eða góðu salati. Hellið sósunni yfir.