Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is
Gefðu einkunn (0 eink.)
Gufusoðin ýsa með saffransósu
Hægt er að nota 2 stk vorlauk í stað 1 lauks.
Þvoið og þerrið flökin, og skerið þau í fjóra jafna bita.
Klippið út fjóra ferninga úr álpappír.
Leggið fiskbita á miðju hverrar arkar.
Dreypið sítrónusafa og hvítvíni yfir.
Stráið pipar yfir.
Lokið hverri örk.
Gufusjóðið í 15 mín.
Látið laukinn krauma í hvítvíninu við vægan hita í 5-8 mín.
Sigtið í lítinn pott.
Opnið fiskpakkana og hellið öllum vökva úr pökkunum út í pottinn (lokið pökkunum aftur til að halda fiskinum heitum), bætið saffran og rjómaosti út í og hrærið í þar til osturinn er bráðinn.
Þynnið sósuna ef þarf.
Setjið sósu á hvern disk og leggið fiskstykki ofan á.
Berið fram með léttsoðnu grænmeti.