Þú ert hér: Forsíða > Uppskriftir
Ostauppskriftir - Brauð, skyrtertur, forréttir, smáréttir og pizzur | Ostur.is

Gefðu einkunn
(0 eink.)

Senda inn uppskrift

Fiskbögglar









Hráefni fyrir  

Látið fillo deigið standa á borði í allt að 2 klst. í pakkanum. Sjóðið fiskinn í saltvatni, kælið og skerið í litla bita Hægt er að nota ýsu eða skötusel t.d. . Hrærið saman osti, rjóma og dilli blandið fiskinum saman við. Bræðið smjörið. Takið fillo arkirnar úr pakkanum og leggið á þurrann klút og annan klút yfir. Takið eina örk og leggið á borðið með mjórri endan að ykkur. Penslið hálfa örkina með smjöri eftir endilöngu. Leggið hinn hlutann yfir og penslið yfir hann með smjöri. Setjið 1-2 msk. af fiskhrærunni á enda arkarinnar og brjótið hana í þríhyrning yfir fyllinguna, brjótið 3-4 sinnum. Leggið böggulinn á plötu klædda bökunarpappír, og penslið með smjöri. Bakið við 225°C í 20-25 mín.